Baggalútur - Myrra (ásamt GDRN)

Поділитися
Вставка
  • Опубліковано 4 лис 2024
  • Lag og texti: Bragi Valdimar Skúlason
    GDRN, söngur
    Guðmundur Pálsson, söngur
    Sigurður Guðmundsson, raddir
    Kristinn Snær Agnarsson, trommur
    Helgi Svavar Helgason, slagverk
    Guðmundur Pétursson, gítar
    Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson, bassi
    Chris Carmichael, strengir
    Óskar Guðjónsson, saxófónn
    Tómas Jónsson, píanó og orgel
    Tekið upp í Háskólabíói í desember 2022
    Hljóðupptökur: Friðjón Jónsson
    Hljóðblöndun og hljómjöfnun: Friðjón Jónsson og Guðmundur Kristinn Jónsson
    Stjórn hljóðupptöku: Guðmundur Kristinn Jónsson
    Stjórn myndupptöku: Helgi Jóhannesson
    Klipping og litgreining: Guðmundur Kristinn Jónsson
    Myndataka:
    Hlynur Hólm Hauksson
    Sturla Holm Skúlason
    Jón Víðir Hauksson
    Gísli Berg
    Vilhjálmur Siggeirsson
    - - -
    TEXTI:
    Þau koma bara einu sinni á ári
    Ótrúlega vinsæl, miðað við.
    Með öllu sínu óhófi og fári - um allan heim.
    Ég held samt alveg helling upp á þau
    - og heilmikið með þeim.
    Þau flæða yfir menn og málleysingja,
    mátulega passív-agressíf.
    Þegar trítilóðar kirkjubjöllur hringja - heims um ból
    þá er endanlega óumflýjanlegt
    það eru…
    jól - enn á ný.
    Ég hefði nú reyndar mátt búast við því.
    Jól - eins og í fyrra.
    Veröldin er reykelsi og gull.
    En ég er myrra.
    Ég hefði átt að elska þig í júlí
    í öllu falli meðan það var bjart.
    En í staðinn er ég hér - fremur fúl í desember
    Og horfi upp á hamingjusöm flón
    Sem halda….
    jól - enn á ný.
    Ég hefði nú getað gert ráð fyrir því.
    Jól - eins og í fyrra.
    Veröldin er reykelsi og gull.
    En ég er myrra.
    Veröldin er reykelsi og gull.
    En ég er myrra.

КОМЕНТАРІ •