Þjóðhátíðarást
Вставка
- Опубліковано 9 тра 2019
- Höfundur lags og söngur: Sigurjón Lýðsson
Texti: Lýður Ægisson og Selma Hrönn Maríudóttir
Hrafnkell Pálmarsson: Útsetning, hljóðupptaka, trommur, gítarar og píanó.
Rúnar Ingi Guðjónsson: Bassi
Hafþór "Tempó" Karlsson: Hljóðblöndun og hljóðjöfnun
Bakraddir: Birgitta Ösp Smáradóttir, Hrafnkell Pálmarsson og Þorsteinn Lýðsson.
Myndefni frá Þjóðhátíð 2013: Sighvatur Jónsson / SIGVA media
Klipping og samsetning: Selma Hrönn Maríudóttir
Þjóðhátíðarást
Með þér, aðeins þér, vil ég vaka í kvöld,
er varðeldur flytur sitt ljóð.
Við horfum á loganna ljósneistafjöld
sem lyftast frá töfrandi glóð.
Saman við bindumst nú, sálir tvær, ég og þú.
Sveipar dalinn þjóðhátíðarást. (x2)
Þá flugeldar ljóma og lífga upp grund.
Við leiðumst og öðlumst smá kjark.
Og magnaða upplifum örlagastund
er Amorsör hittir í mark.
Saman við bindumst nú, sálir tvær, ég og þú.
Sveipar dalinn þjóðhátíðarást. (x2)
Í brekkunni sameinuð syngjum við dátt
og skálum hér margþúsundfalt.
Við tignum þig, Eyjar, og elskum þig nátt.
Já, ástin hér umvefur allt.
Saman við bindumst nú, sálir tvær, ég og þú.
Sveipar dalinn þjóðhátíðarást. (x2)