#64. - Sjallar í sjálfheldu og afarkostir innan ríkisstjórnarsamstarfs
Вставка
- Опубліковано 11 лют 2025
- Hildur Björnsdóttir, leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn virðist eiga fáa kosti í tilraun til að mynda nýjan meirihluta. Hún er til svars á vettvangi Spursmála.
Um liðna helgi var tilraun gerð til þess að mynda nýjan meirihluta Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks, Flokks fólksins og Viðreisnar.
Þær hugmyndir runnu út í sandinn þegar ljóst varð að Flokkur fólksins hefur útilokað samstarf við Sjálfstæðisflokkinn.
Hvaða meirihlutamynstur er þá í myndinni?
Áður en kemur að viðtalinu við hana mæta þeir á svæðið, álitsgjafarnir og reynsluboltarnir, Björn Ingi Hrafnsson, fyrrum oddviti Framsóknar í borgarstjórn og núverandi aðstoðarmaður formanns Miðflokksins og Gísli Freyr Valdórsson, stjórnandi Þjóðmála. Þeir eru gjörkunnugir því völundarhúsi sem valdamenn í borginni reyna nú að feta í átt að nýjum meirihluta.