#16 Forsetamambó, hvellsprungið fasteignamat og fiskeldiskarp
Вставка
- Опубліковано 15 бер 2024
- Í nýjasta þætti Spursmála takast þeir Jens Garðar Helgason aðstoðarforstjóri Fiskeldis Austfjarða og Jón Kaldal, talsmaður Íslenska Náttúruverndarsjóðsins og fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins, á um sjókvíaeldi við strendur Íslands. Hafa skiptar skoðanir verið á fiskeldi hér á landi að undanförnu þá einna helst þegar litið er til umhverfissjónarmiða og erlends vinnuafls.
Þingkonan Diljá Mist Einarsdóttir fer yfir það sem var efst á baugi í líðandi viku ásamt Mörtu Maríu Winkel Jónasdóttur fréttastjóra dægurmála hjá Morgunblaðinu. Rýndu þær í yfirvofandi forsetakosningar og mögulega frambjóðendur en mörg og ný nöfn hafa verið nefnd í því samhengi síðustu daga.